Krummu ungi á afmæli í dag.
10.10.2007 | 10:05
Í dag á yngsta dóttir mín afmæli. Er orðin 15 ára, finnst hún þó oft vera eldri því hún er svo fjári klár stelpan. Ég má til með að monta mig aðeins af henni.
Í vöggugjöf fékk hún nefnilega vel úthlutað af greind, skemmtilegheitum og hæfileikum. Stúlkan er með afbrigðum fyndin, mikill friðar og umhverfissinni, er grænmetisæta með meiru, spilar á trommur, gítar og hljómborð. Hún má ekkert aumt sjá, og hefur sanngirni að leiðarljósi í lífi sínu.
Þessi elska hefur blessunarlega sloppið við að vera gelgja, og svo finnst henni frábært að fara með mömmu eða Pabba, á kaffihús, þar sem við ræðum heimsins gagn og nauðsynjar.
Beta mín til hamingju með daginn, hlakka mikið til að koma heim og þá ætla ég að knúsa þig og kreista.
Mina rakasta sinua mamma.
Athugasemdir
Mín átti afmæli þ. 7 s.l. Hún er svona húmanisti með hlutverk og með hjarta úr gulli. Eins og Lennon og fleiri. Hehe. Til hamingju með snúlluna
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 10:14
Til hamingju með daginn Betan mín og krumman og Veil
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 10:32
Á eina sem er fædd 7/10 hefur alla tíð verið glöggskyggn á húmorinn í hinu daglega :)
Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins mæðgur :)
Guðrún Jóhannesdóttir, 10.10.2007 kl. 12:00
Hæ til hamingju með dótturina hún er áreiðanlega frábær eins og hún á kyn til njótið dagsins
Ragnheiður Sigfúsdóttir, 10.10.2007 kl. 14:15
Til hamingju
Píslin mín kom of snemma í heiminn og er í árganginum á undan og verður 16 ára 5. des.
Veit ekki af hverju ég kalla hana písl, skörungur og hetja lýsa henni betur, hún er með fagrar og miklar skoðanir á öllu þessi elska.
Hamingjuóskir til ykkar ...beggja
Fríða Eyland, 10.10.2007 kl. 15:04
Þakka þér fyrir mamma.
Sakna þín óendanlega mikið og elska þig meira en allt.
Hafðu það sem best í Finlandi.
-Elísabet
Elísabet (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 15:32
Takk fyrir allar hamingjuóskir, ég er rík að eiga þessar yndislegu dætur mínar.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 10.10.2007 kl. 19:17
Innilega til hamingju með stelpu skottið þitt
Ásdís Sigurðardóttir, 10.10.2007 kl. 23:20
til hamingju með litla/stóra hrafnsungann, þau eru yndisleg
Þórunn Óttarsdóttir, 11.10.2007 kl. 00:01
Til hamingju með stúlkuna þína
Salka, 11.10.2007 kl. 23:23
Til hamingu stolta mamma... og dóttir góð.. þið eruð perlur ALLAR... já og mansinn þinn líka...
Það er langt síðann ég kíkti við síðast en núna fer að stittast í ritgerð þá verður maður aðeins betur tengdur...
KNÚS og kossar frá íslandinu fræga... þú ert best...
Margrét Ingibjörg Lindquist, 12.10.2007 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.