Allir í sjöunda himni....
5.5.2008 | 18:13
Takk öll fyrir fallegar kveðjur.....hér koma svo fyrstu myndir af litlu maí sólinni....er svo lánsöm að eiga tvær, 2 maí og 5 maí.
Myndgæðin eru ekkert sérstök því auðvitað gleymdi ég myndavélinni heima í öllum spenningnum, reddaði mér á símanum.....
Litla snótin fæddist svöng, er búin að vera á brjósti síðan hún kom í heiminn en svo þurfti mamman að hvíla sig þá reddaði maður sér bara með því að sjúga fingurinn..
Annars segir Birna ömmusystir að hún sé bara eins og aðrir í fjölskyldunni...lítil og sísvöng.....
Litla maísólin hjá ömmu Krummu...
Og hér rekur maður bara út úr sér tunguna, til hliðar sést í bros á mér sem reyndar hefur ekki farið af mér í allan dag og í bakgrunninn sést í mömmuna sem er orðin ansi lúin eftir svefnlausa nótt og strembinn dag
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Jedús minn almáttugur hvað hún er yndisleg. Hugsa sér komin í föt allt í einu og er búin að vera að svamla í vatni í 9mán, hvernig skildi henni finnast það?? enn og aftur innilega til hamingju.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.5.2008 kl. 18:15
Æji enn og aftur til hamingju amma, þetta er snúllan. Og auðvitað kveðjur til foreldranna og Vals afa :) Gaman að sjá myndir
Erna Friðriksdóttir, 5.5.2008 kl. 18:17
Vá, hvað hún er sæt! Til hamingju með litla engilinn
Kolgrima, 5.5.2008 kl. 18:24
Lítil,svöng og SÆT þannig erum við konurnar í okkar fjölskyldu.Ömmusystir hljómar eins og ég sé 89 ára hehehehehe.Knús á ykkur Er enn að hlæja að þessu með blinduna og hálskirtlana hahahahaha
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 19:04
Jesúsamía hvað maður er fallegust. Arg og krúttkast í næsta vegg.
Svo ullar maður bara, daman er með attitjúd. Mér líkar það vel.
Knús á þig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.5.2008 kl. 19:53
Stelpur hún er svo yndisleg...fer bara ekki úr huga mér
Ljósurnar hafa hlegið sig máttlausar í allan dag...hafa ekki rekist á svona skapstóra litla hnátu í háa herrans tíð, litla daman fer að orga um leið og brjóstið fer úr munninum, og það skiptir engu máli þó ekkert komi úr því.
Stóra systir kom í heimsókn til litlu systur og byrjaði á því að rífa hana úr spjörunum skoðaði tær og fingur og spurði svo spekingslega....er búið að taka úr henni hálskirtlana???? hún fór nefnilega sjálf í þannig aðgerð í fyrra og finnst enginn maður með mönnum nema vera búin að fara í gegnum þannig aðgerð.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.5.2008 kl. 20:58
Jeminn!! til hamingju með litlu dúlluna, hún er nú meira krúttið
Knús á þig
Huld S. Ringsted, 5.5.2008 kl. 20:58
Fallegust þessi unga dama. Innilega til hamingju með ömmudúlluna
Helga skjol, 5.5.2008 kl. 21:45
je minn hvað hún er falleghahaha stóra systir yndisleg með spurninguna um hálskirtlana
Brynja skordal, 6.5.2008 kl. 01:02
Æðislegt undur, ó guð.
Hamingjuóskir frá mér á alla.
Frábær neðsta myndin auðvitað allar þrjár en neðsta er bara snilld.
Kveðja frá kleppsholti
Fríða Eyland, 6.5.2008 kl. 11:29
oooooooo algjört krútt
og ullar svo bara á heiminn, æðisleg dúlla.
já, er búið að taka úr henni hálskirtlana frábær spurning, að sjálfsögðu ofarlega í huga eftir aðgerðina
Knús á alla fjölskylduna og ekki síst á krúttmolann maísólina þína Krumma mín, sendi henni fullt af kærleik og ljósi
Guðrún Jóhannesdóttir, 7.5.2008 kl. 11:40
Hún er yndisleg - algjör snilld - það er eins gott að það sjáist strax að hún líkist ömmu sinni í karakter!
Edda Agnarsdóttir, 12.5.2008 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.