Afi öskubuska og helgarferð....jeiiiii.
1.2.2008 | 13:33
Það er eins gott að veðrið haldist skaplegt í dag, er að fara í sumarbústað með vinafólki yfir helgina og ætla að liggja í heita pottinum fram á sunnudag.. ok fer í smá gönguferðir ( í úlpu Jenný, hehe ) og borða góðan mat. Ég þarf að vísu að taka með mér skólaverkefni en það er allt í lagi, bara gaman af því.
Við fórum í mat til elstu dóttur okkar í gær, þau voru að flytja inn í þetta fína hús sem þau voru að byggja. Nema hvað að við erum ekki fyrr komin inn en að okkur er boðið inn í herbergi barnabarns, stúlkan sú á þetta fína búningasafn og okkur afanum og ömmunni var skipað í hlutverk.....afi var öskubuska með gula, uppsetta hárkollu og ég var mjallhvít með svarta slöngulokka.....ég sverð það ég meig á mig af hlátri að sjá afann í lopapeysu með gult uppsetthár lifa sig inní öskubusku....haha.
Ef það er eitthvað sem heldur manni ungum eru það börnin...
Er farin að pakka....vonandi eigið þið öll góða helgi.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Spaugilegt, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Aldeilis stuð á ykkur, eigðu ljúfa helgi með þínu fólki. Kær kveðja norður.
Ásdís Sigurðardóttir, 1.2.2008 kl. 13:40
Eigðu góða helgi í bústaðnum
Huld S. Ringsted, 1.2.2008 kl. 19:46
Hehehe gastu ekki tekið mynd af afanum ?
Ragnheiður , 1.2.2008 kl. 21:09
Njóttu helgarinnar í helv.. úlpunni hehe.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.2.2008 kl. 00:10
Krumma krunkar inni ,kallar á manninn sinn, ég fann öskubusku gervi, mjallhvítar búninginn.
Gaman hjá þér! hehehe
Edda Agnarsdóttir, 2.2.2008 kl. 13:42
leikur er hollur...........líka fyrir afa og ömmur
Þórunn Óttarsdóttir, 2.2.2008 kl. 15:43
knús og kossar...
Margrét Ingibjörg Lindquist, 3.2.2008 kl. 12:08
Vona að þið hafið ekki frosið í hel í sumarbústaðarferð.
ég hefði sennilega grátið úr hlátri.. yfir afanum sko
Jóna Á. Gísladóttir, 3.2.2008 kl. 14:32
Knús til ykkar og til hamingju með innflutningin.Knús til allra.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 20:23
Kæra Krumma, þarftu ekki að koma suður og láta líta á blöðruna Þá gætum við hist...loksins
Fríða Eyland, 4.2.2008 kl. 00:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.