Bullandi fráhvörf og brenndir afturendar....
4.1.2008 | 00:55
Ég hef sýnt af mér eindæma þráhyggjukennda hegðun í dag, jú sei sei reyndi nebbla ítrekað að komast inn á bloggið vitandi það að stórfelldar árásir væru í gangi og allt lok lok og læs
Kannski þessi hegðun orsakist af sykurdoða sem lagst hefur á heilan eftir margra daga át í óhollustu......allavega var ég eins og fíkill í fráhvörfum þegar ég stakk hausnum oní kökudúnkana og sleikti þá að innan, nei djók ,en mig langaði svakalega til þess.
En ég semsagt eyddi deginum í það að hlaupa um í ofboði með afþurrkunarklút og moppu á milli þess sem ég leitaði í mikilli örvæntingu að sætindum í skápunum, opnaði meira að segja sömu skápana aftur og aftur....eins og ég myndi fyrir eitthvert kraftaverk finna súkkulaði sem var þar ekki áður, og rauk svo þess á milli í tölvuna vitandi að það væri vonlaust að komast inn...DHÖ
Mitt í öllu þessu rugli dettur mér sú della í hug að draga húsband með mér í ljós.
Jess æ nó, það er svakalega óhollt, hef ekki farið í mörg ár en fannst einhvern veginn að þetta væri brilljant hugmynd, hlyti bara að vera gott gegn öllu myrkrinu sem hvílir yfir landinu.
Húsband gerði heiðarlega tilraun til að mótmæla ( að sögn ) en auðvitað heyrði ég það ekki, enda í bullandi blogg og sykur fráhvörfum.
Í kvöld sitjum við svo fáklædd með svíðandi brunatilfinningu á afturendanum og lýtum út eins og jólatré í fullum skrúða, eldrauð og lýsandi...... étandi nömm, því auðvitað var komið við í sjoppu á heimleið til að bjarga geðheilsu minni.
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Spaugilegt, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Þú klikkar ekki á skemmtilegheitunum frekar en fyrri daginn kona góð. Hahahaha.
Gerði vörutalningu á sælgætislager í gær (maður verður að vita um innihald skápa)
1 kassi súkkulaðirúsínur (hvernig dettur mér í hug að kaupa svona með sykursýki?)
1/2 kílókonfektkassi af Nóatýpu
1 Kassi súkkulaðimolar með lakkrískremi
1 Bismark brjóstsykurspoki
1 kassi After eight
og ég legg ekki meira á þig. Það gleymdist nefnilega að borða sælgæti hér um jólin. Svo mikð að gera í öllum hinum ullabjökkunum.
Farin í ljós (jeræt)
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.1.2008 kl. 09:48
Hehe, svaf ekki nema í dúrum í nótt, er svo brunninn á öllu bakstykkinu, je æ nó....gott á mig, hvað á það líka að þýða að fara í ljós, stórhættulegur andskoti.
Skamm kona að eiga svona mikið af nömmum, nú er það grænmeti og baunaréttir fram á sumar.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 4.1.2008 kl. 10:51
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 13:18
Jenný, frábært að eiga svona lager EFTIR jólin
Guðrún Jóhannesdóttir, 4.1.2008 kl. 13:56
Hæ elskuleg og húsband, gleðilegt árið. Jamm bæði ljósadellan og súkkulaðidellan klínast fast við botninn á manni en jafnið ykkur sem fyrst. Ath, súkkulaði læknar allt!!!
kv. súkkulaðifíkillinn Dagrún
Dagrún Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 17:29
Dásamleg lýsing. Hér er ekki til arða af nammi og ég þessvegna alveg að deyja úr löngun í eitthvað sætt. Ætla að fá mér Kiwi. Hvernig líður brunarústunum?? Hvítt er INN í dag kjáninn þinn.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 22:06
Hef gengið um í víðum náttserk í allan dag og ekki komist út úr húsi, dóttirin fór í apótek eftir smyrsli... síðar kom í ljós að bruninn var eftir hreinsi efnin sem notuð voru á bekkina, þannig að ég er með efnabruna- ekki sólbruna En geðið hresstist til muna við birtuna, soldið dýrkeypt vellíðan samt.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 4.1.2008 kl. 22:16
ææ, fja... hreinsiefnin
en þetta tekur enda eins og annað...
Guðrún Jóhannesdóttir, 4.1.2008 kl. 23:23
hvernig heilsast svo í dag Krumma mín?
Guðrún Jóhannesdóttir, 5.1.2008 kl. 13:01
Ekki beint þægileg uppákoma! En því meira gaman af bloskrifinu þínu. Vonandi gengur þetta fljótt yfir, góða jólarest helgi.
Edda Agnarsdóttir, 5.1.2008 kl. 18:10
Dagrún..súkkulaðið sest framan á mig, með þessu áframhaldi verð ég eins og rútubílstjóri það mætti þó gjarnan fara smá á lærin...
Gunna: er því miður svipuð, þokast hægt í átt að bata.
Edda: takk sömuleiðis
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.1.2008 kl. 18:59
He he ekki er gott að vera í bullandi fráhvörfum að sælgætisáti, ég er ekki komin í þau enn , því að enþá hef ég slatta til á nammibarnum mínum,enda passa að bæta á hann en verst með forðan sem að safnast hefur á mann þessa jóladaga og sammála afhveju getur ekkert af honum dreifst á fótleggina á manni bara um miðjan búiknn og ólíðandi þetta bakspik sem vill setjast á mig Megi þið öll fjölskyldan hafa gæfuríkt ár.
Erna Friðriksdóttir, 6.1.2008 kl. 09:48
takk fyrir hlýtt komment Krumma mín
Guðrún Jóhannesdóttir, 7.1.2008 kl. 00:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.