Blóðsykurfall,kuldi,annir og leikhús.

Langur dagur að kveldi kominn, klukkan er rúmlega tólf og í stað þess að sofa í hausinn á mér hangi ég fyrir framan tölvuna og bæði les og skrifa blogg.Shocking

Ætla samt að vakna 6:30 og skella mér í leikfimi, ná úr mér sykurdoðanum. Í dag var kóld turký, ekkert nammi og enginn sykur- afleiðing? jú ég er búin að vera ísköld og með nötrandi blóðsykurfall síðan 7 í morgun. En hvaa verð orðin góð eftir 3 daga.

Ég má orðið hafa mig alla við til komast bloggrúntinn, Þið Þarna elskulegu bloggvinir skrifið svo mikið og oft og auðvitað  má ég  ekki missa af neinu.

Hei smá hugmynd! er ekki hægt að setja kvóta á ykkur þið vitið....einn bloggar í dag, annar á morgun og svo koll af kolli?  W00t Ha, nei segi bara sona.

Annars fór ég í leikhús í gærkveldi á frábæra sýningu sem heitir " Ökutímar " sem mér finnst að allir landsmenn ættu að sjá. Leikarar náðu að fara með mig upp og niður allan tilfinningaskalann, og ég teygðist út og suður. Gekk út af sýningunni  með ekka og grátbólgið andlit.

En þar sem það er orðið svo framorðið og ég úrvinda þá segi ég nánar frá verkinu síðar.

Þangað til.....smjúts.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú verður nú að sofa mín kæra, mátt ekki láta lestur bloggs hafa af þér nætursvefninn þegar þú þarft að vakna svona snemma.  Hafði það gott í sykurfalli næstu daga. Þetta hlýtur að skána.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.1.2008 kl. 00:51

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vonandi ertu ekki að tala um alvöru blóðsykursfall eins og vér sykursjúkir fáum?

Krumma mín, lestu mitt blogg, bara, það dugir hverjum meðal togarasjómanni.  hehe

Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.1.2008 kl. 00:55

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það reyndar bilaði í mér skjaldkyrtill fyrir einhverjum árum síðan, fékk lyf við því en fyrir þann tíma varð  blóðsykur eins og hjá manneskju sem er með sykursýki hef verið mjög viðkvæm síðan, verð að passa að borða rétt, oft og lítið annars er það bara svimi, ógleði, pirringur, sjóntruflanir og svefntruflanir, en ekki lífshættulegt ástand eins og það getur orðið hjá þeim sem kljást við  sykursýki, semsagt heimatilbúinn vandi sem ég kem mér vel og rækilega í sjálf með óhóflegu áti á ullabjakki.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 8.1.2008 kl. 06:38

4 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

vona að morgunleikfimin hafi verið gott start inn í daginn hjá þér Krumma mín, og þú skjálfir ekki mikið í dag

Farðu vel með þig og skilaðu kærri kveðju til múttunnar þinnar

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.1.2008 kl. 08:51

5 identicon

Úff það er nógu erfitt að vakna þó ekki sé vaknað á nóttunni.Gangi þér vel í íþróttunum.Ég byrjaði í gær

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 10:24

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Spennandi þetta með leikritið! Hefur þú ekki fengið imail frá mér?

Edda Agnarsdóttir, 8.1.2008 kl. 19:02

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Helga: vona að þú fáir nýtt hné sem fyrst, veit að það er erfitt að vera hreyfihamlaður og/eða þjáður af verkjum, smjúts.

Edda: já leikritið var frábært á eftir að segja betur frá því og nei fékk engan póst..skrifaði í kommentafærsluna hjá þér.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 8.1.2008 kl. 19:50

8 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Dugleg ertu, ég aftur á móti bara skelli mér í sjoppuna á morgnana       En þar finn ég ekki nokkra þörf fyrir sykur áti, kanski af því að það glamrar í hverri hillu ? Ég er verri þegar heim er komið og þá dauðsé ég eftir að hafa ekki byrgt mig upp og fer að leita í skápum he heh he............... En hvernig voru þeir sem að sátu þér næstir á leiksýningunni eftir að þú baðaðir út öllum öngum :) ?

Erna Friðriksdóttir, 8.1.2008 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband