jei....önnur sjúkdóma færsla.....
26.6.2008 | 13:21
Hún Jenný Anna bloggvinkona talar um aldur í einni færslunni....ég hef nefnilega líka verið að hugsa um aldur...kemur ekki til af góðu.
stend nefnilega frammi fyrir því að vera komin með kvilla og sjúkdóma sem herja oftast á fólk sem er mér miklu eldra...sjálf er ég ekki nema 42 ára
nú svo fer að birtast hér hver sjúkdómafærslan á fætur annarri....það er ekki bara að hægðir séu orðnar áhugamál heldur sjúkdómar líka....
síðast skrifaði ég um síþreytu, vefjagigt og heilaþoku
í gær fékk ég niðurstöður úr blóðrannsókn......
konan er á byrjunarstigi sykursýki og með blóðfitu 21.....á meðan Jón og Gunna eru með 0,75-2,5 í blóðfitu...ég sigli hraðbyri í hjartaáfall...
biluð innkirtla starfsemi heitir þetta....
nú er allt bú sem inniheldur einhvern sykur og fitu...
hámark spennunnar fyrir mig verður að ákveða hvort snæða skuli spínat eða kál í kvölmat....
er nema von að mér finnist ég vera farin að eldast.....
er farin að prjóna leppa.....ætla senda jenný eitt par, þetta ku vera svo notalegt í fótlaga skóna....hehe
hér er sjúklingurinn að vinna.......
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 13:27 | Facebook
Athugasemdir
Æj elsku Krumma mín, ég fékk svona þvælu út úr rannsókn í vor..í efri mörkum með þetta og hitt en hann taldi það nú geta verið álagstengt. Maður verður víst að fara að spá aðeins í heilsunni. Annars er það gigtin sem kvelur mest og köstin alveg andstyggilega vond. Mér er bara ekki nægilega illa við neinn til að reyna að galdra þetta yfir í þann aðila.
Takk fyrir hjálpina elsku Krumma.
Ragnheiður , 26.6.2008 kl. 13:26
sammála, gigtin kvelur mest....annars finnst mér þreytan versti hlutinn, þegar hugurinn er til í hvað sem er en skrokkurinn bara gegnir ekki....
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 26.6.2008 kl. 13:30
Æ, þetta var leiðinlegt að heyra. Þér tekst örugglega að gera eitthvað jákvætt úr þessu. Flott í vinnunni skvísa.
Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 13:48
Ljótt er að heyra þetta. Merkilegt með þessa blóðfitu. Það var gerð blóðfitumæling í vinnunni hjá mér og ég sem er feitust var með langlægstu blóðfituna, lægri en þær sem búa á hlaupabrettinu og lifa á gulrótum.
Helga Magnúsdóttir, 26.6.2008 kl. 13:52
Leiðinlegt að heyra Krumma mín. En það er fínt að skipta um mataræði, það varð ég að gera eftir að ég greindist með sykursýki (insúlínháða), og svo þarf ekkert að verða úr þessu.
Knús á þig og ég er búin að biðja Árbæjarsafnið um sauðskinsskó til að geta notað leppana.
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2008 kl. 14:23
Flott hjá þér þetta með leppana - minnir mig á sveitadvölina í Eyjafirði þegar ég var barn og týndi ullarlagðir af gaddavírsgirðingunum og afhenti gömlu konunni í bænum sem bjó til innlegg í stígvél og skó úr því!
Edda Agnarsdóttir, 26.6.2008 kl. 18:11
luv u ömminn minn
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 19:12
Bara hundleidinlegt ad fá svon úrskurdi....Ég var líka í sykur mælingu,í tridja sinn tví í fyrstu tveimur fannst sykur en í teirri seinustu ekki ,svo ég er bara í gódum málum tó ég se frekar í stærri kantinum.
Hef samt tekid ákvördun ad byrja núna 15 júlí í einhverskonaráródri á sjálfa mig í von um tyngdartap.
Knús á tig inn í gódann dag.
Gudrún Hauksdótttir, 27.6.2008 kl. 05:39
innlits kvitt eftir langt frí farðu vel með þig og hafðu ljúfa helgi elskuleg
Brynja skordal, 27.6.2008 kl. 10:25
OMG . til þín...
Fríða Eyland, 27.6.2008 kl. 12:29
hæ, sendu mér síman hjá þér á e-mail mitt, ég er buin ætla að heyra í þér sándið, hvað ruslpóstvörn er þetta þarna, gerir mér erfitt fyrir, summan af fimm og fjórum?
georg oskar (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 13:08
óskar hvað er mailið hjá þér???
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 27.6.2008 kl. 13:24
úff! ljótt að heyra þetta. Farðu vel með þig Krumma mín það borgar sig þegar til lengri tíma er litið
Guðrún Jóhannesdóttir, 27.6.2008 kl. 14:32
ég hef verið í þessu ástandi og var farinn að huga og segja gamla steina. fékk svo skilaboð frá einum mér mjög kærum að ég myndi kalla yfir mig þessi hugsanaform, og þá yrðu þau að raunveruleika. svo passa sig !!!
þú er falleg þar sem þú vinnur
Kærleikur til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 19:35
Úff! þetta er ekki gott. Ætti kannski sjálf að fara í allsherjar skoðun
Eigðu góða helgi Krumma mín
Huld S. Ringsted, 27.6.2008 kl. 22:02
Knús á þig Krumman mín
Helga skjol, 28.6.2008 kl. 10:14
Æi. Ekki gott. Vonandi fer eins og Jenný segir, að það verði kannski ekkert úr þessu. Annars er breyting á mataræði til hins betra oft hið mesta kraftaverk.
Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2008 kl. 19:57
já ég er að vona það að mataræðið breyti þessu til frambúðar...og hef reyndar trú á því að þannig verði það
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 30.6.2008 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.