Hamingjufærsla...

Ég var vöknuð kl 10 í morgun, þrátt fyrir lítin svefn síðustu daga og vikur, tími bara  ekki að sofa meira enda yndislega fallegur dagur framundan og fullt af skemmtilegum verkefnum sem bíða eftir afgreiðslu.

Eins og landinn veit var brjálað veður í gær og þó ég sé fáránlega hrædd við mikinn vind þá var samt eitthvað svo kósý að vera heima og hlusta á gnauðið í gluggunum og húsið nötra í mestu hviðunum.

Húsband framkallaði veislu úr steiktum saltfiski, kartöflum hvítlauk og sólþurrkuðum tómötum.....mmmmm, já og hann skreytir alla diska, skammtar hverjum og einum þannig að það verður miklu skemmtilegra að borða, maður nýtur matarins betur í stað þess að skófla sjálfur á diskinn og missa yfirsýn yfir magn.

Ég upplifði brjálað hamingju móment í gærkveldi,  elsta dóttir kom í heimsókn með hundana, við sátum öll saman í sófunum, ég glamrandi á gítar og hinir að spjalla saman og horfandi með öðru auganu á sjónvarpið, allir glaðir, saddir og einhvern veginn opnir og innilegir,  þetta var eitt af þessum augnablikum sem gerir einhvern veginn allt þess virði, það að vísu vantaði miðju barnið en nú fer að styttast í að hún komi heim og mikið sem mig hlakkar til, það er svo góð tilfinningin að hafa alla nærri sér.

Síðustu 2 vikur hafa verið alveg sérstaklega skemmtilegar, ég tók 2ja vikna kúrs í skapandi teikningu og gerði eitthvað af grafík myndum líka, en kennarinn hafði einstakt lag á því að vekja upp vinnugleði hjá öllum, síðustu viku var ég öll kvöld að vinna og ef ekki væri fyrir reglur skólans þá hefði ég gist þar nokkrar nætur.

Well er farin syngjandi inn í daginn......með hamingju hugsanir efst í kollinum og góða sjálfsvirðingu í veganesti, eigið góðan dag líka elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

Þú ert svo  mikill snillingur og það er svo yndislegt að þekkja þig og fjölskyldu þína... Þið eruð einstök í flóru mannlífsinns og þrátt fyrir erviða tíma þá kunnið þið að nota það til að bæta og verða hamingjusamari fyrir vikið... Hamingja þín smitar til mín og ég fer að brosa og langar að brosa í gegnum daginn með þér... Takk kæra vinkona fyrir að vera til staðar þegar á reynir og í fjarlægðinna að hugsa til okkar... KNÚS þú ert ein af perlunum sem príðir vina-perlufesti mín... Njóttu dagsinns...

Margrét Ingibjörg Lindquist, 9.2.2008 kl. 12:11

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Æ hvað þetta er sætt blogg og uppbyggjandi - ég verð nú alveg hugsjúk þegar þú minnist á myndlista kúrsa.

Er í þessu að hlusta á fréttir og finnst þetta sorglegt sem gerðist á Korpúlfsstöðum.

Edda Agnarsdóttir, 9.2.2008 kl. 12:28

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég varð nú bara syngjandi glöð af því að lesa þessa færslu

Eigðu góðan dag

Huld S. Ringsted, 9.2.2008 kl. 12:47

4 identicon

Falleg færsla.Faðm til ykkar.Ég hugsa til þín á tónleikunum í dag. Ég er að fara á tónleika með fiðlusnillingi.Það er víst algjört konfekt að hlusta á hann spila.Góðan og blessaðan dag til ykkar

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 12:54

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svona konur eins og þú í þessu múddi eru bráðnauðsynlegar á hvert heimili.  Geturðu skroppið aðeins?

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.2.2008 kl. 13:03

6 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Magga...takk fyrir falleg orð

Edda...drífa sig á námskeið rosaleg útrás og ógó skemmtilegt...já ömurlegt með tjónið á Korpúlfs

Huld.....gleði getur verið bráðsmitandi....he he

Systir..njóttu tónleikanna og knús til baka

Jenný....ha ha vildi gjarnam skreppa í sígó og kaffi.....síðustu forvöð með sígóið ef vel gengur.......gætum örugglega talað í marga daga og svo gæti ég auðvitað tekið lagið með húsbandinu þínu......hver veit. 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 9.2.2008 kl. 17:03

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

til hamingju með HAMINGJUDAGINN

Falleg færsla og fallegt komment sem þú fékkst frá henni Möggu

Guðrún Jóhannesdóttir, 9.2.2008 kl. 20:04

8 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Hey hey hey og hó hó hó......... við verðum einhvertíms vonandi fljótlega :)   ð hittast á tanganum (gleymdu ekki gítarnum) og syngja og hafa gaman    Við vorum nú einu sinni samna í kór og ég held að ég hafi amk eitthvert píp úr gogginum á´mér enþá.. Við bara hertökum Hvammstangabr nr ..................... he he he he hhee e

Erna Friðriksdóttir, 9.2.2008 kl. 21:37

9 identicon

Þú ert alveg yndislega dugleg - og hamingjusöm.  Til hamingju með það.  Alveg frábært.

Elisabet R (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 21:51

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Klukkan er orðin hálf ellefu og dagurinn því liðinn hjá þér, en vonandi ertu enn í hamingjugír.  Héðan er allt gott nema bara allt of hvasst fyrir minn smekk.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 22:37

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

að vera í augnablikinu og njóta þess meðvitaður, er lífið !

fallegan þriðjudag til þín

Bless í dag

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 08:29

12 identicon

Sæl vinan, ákvað að kommenta loksins hjá þér, og hvað betra heldur en hamingjufærsla! Synd og skömm að við gætum ekki fengið að lúlla í skólanum (ekki hefði sumum veitt af því:P).

kveðja.

Hertha

Hertha (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband