Af helginni.......

Þá er þessi annasama helgi á enda og streð næstu viku byrjar um leið og ég opna augun í fyrramálið....ég er eiginlega farin að bíða eftir páskafríi...ætla liggja með tærnar upp í loft og gera helst ekki neitt nema eyða tíma með fjölskyldunni minni.

Í gær vorum við nemar í fagurlistadeild  með opnun í gallerí boxi , gerðum verk á Veggverk í miðbæ Akureyrar. Einnig var listamaðurinn Hrafnkell Sigurðsson með opnun. Við buðum upp á súpu og brauð ásamt smá söngatriði, það gekk vel hjá okkur þó maður væri ekki alveg laus við stress.....það minnkaði heldur ekki við að sjá svona marga góða tónlistarmenn mæta á svæðið....sá strákana í Gus Gus....ég er mikill aðdáandi þeirra....InLove

Húsband bauð svo bandinu í mat í ljúffengar kjúklingabringur og svo var farið í teiti til  einnar skólasystur annars má ég ekki vera að því að skrifa núna, á að vera lesa fyrir heimspekina....Whistling

en ég kem aftur...... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Til hamingju með sýninguna...

Fríða Eyland, 17.2.2008 kl. 22:29

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vildi að ég gæti skotist norður.  Eigðu góða viku framundan, vona að þú drukknir ekki í  vinnu.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 22:30

3 Smámynd: Kolgrima

Frábært, til hamingju með sýninguna

Kolgrima, 17.2.2008 kl. 22:40

4 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

frábært að helgin var góð, til lukku með hana, knús til þín mín kæra

Guðrún Jóhannesdóttir, 17.2.2008 kl. 23:07

5 Smámynd: Fríða Eyland

Eru nokkuð myndir á leiðinni,

Fríða Eyland, 18.2.2008 kl. 01:05

6 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Takk fyrir hamingjuóskir og myndir fara týnast inn í vikunni.....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 18.2.2008 kl. 06:31

7 identicon

Til hamingju.Takk fyrir faðmið.Það komst til skyla  eftir vinnu í gærkvöldi. Knús á alla.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 13:38

8 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Varst þú að syngja skvísa ? kanski með gítarinn líka    Oh  já páskarnir verða yndislegir,   ekkert að elda ekkert að hugsa , bara jommi jomm      kem svo heim í kofan minn eftir páska..   Skil það ekki hef aldrei þolað þessa páskadaga?????

Erna Friðriksdóttir, 18.2.2008 kl. 16:21

9 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

já er í hljómsveit sem heitir myndbandið....skipuð mér og tveim strákum úr myndlistarskólanum....læt þeim eftir gítarspilið enda miklu flinkari í sólóum en ég....

Mér finnast páskar betri en jól..miklu minna tilstand og betra frí einhvern veginn. 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 18.2.2008 kl. 17:21

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég var svo svekkt að komast ekki á opnunina, þar sem fundurinn sem ég var á dróst á langinn. Ég gjóaði augunum þarna upp eftir í einni reykingapásunni og gat ekki séð betur en að það væri margmenni

Huld S. Ringsted, 18.2.2008 kl. 21:04

11 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Sammála þér með þeta tilstand kring um jól það er ekkert eins á páskum, bara gott að borða , engar skrytingar og stúss en samt finst mér þetta hundleiðinlegur tæimi, föstudagurinn langi var svo langur þegar ég var barn he he he út af páskaeggjunum :)   finst það svosem ekkert lengur en verð fegin að vera að heim um þessa páska að passa litlu systir 

Erna Friðriksdóttir, 18.2.2008 kl. 22:13

12 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

er fagurlistadeildin, það sem einu sinni var fjöltæknideildin, (ég var í henni) gunni árna kenndi mér listaheimspeki. þessi ár í MHI og svo framhaldsnáminu í dusseldorf voru bestu árin mín, hugsa til þessa tíma með sælu, sælu, sælu sælu !!!!

Bless í bili

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband